- Þú ert hér: olgerdin.is
- fréttir
Nokkrar staðreyndir vegna saltmálsins
18.01.2012 | 14:20
Ölgerðin sér ástæðu til að eftirfarandi staðreyndir komi fram vegna saltmálsins:
• Það er enginn sjáanlegur munur á vottuðu salti og óvottuðu. Saltið sem um ræðir er 99,6% hreint salt sem er langt umfram það lágmark sem alþjóðlegir staðlar (Codex Alementarius staðallinn 150-1985) segja til um .
• Innihaldslýsingin á vottuðu salti og óvottuðu salti er svo til nákvæmlega eins og báðar tegundir eru framleiddar undir ISO 9001 og ISO 14001 stöðlum.
• Vottað salt og óvottað salt (iðnaðarsalt) er fengið úr sömu saltlögunum á Jótlandi í Danmörku. Saltið er framleitt og geymt með sama hætti, í sömu verksmiðju og samskonar umbúðum.
• AkzoNobel segir enga ástæða að ætla að óvottað salt frá verksmiðju þeirra á Jótlandi sé hættulegt heilsu manna.
• Munurinn á óvottuðu salti og vottuðu eru vottaðir gæðaferlar við vinnslu, frágang, pökkun, geymslu og dreifingu á salti sem á að fara í matvælaiðnað.
• Óvottað salt er ekki geymt óvarið úti á plani og ekki flutt óvarið - einungis í lokuðum plastpokum eða sekkjum, eins og vottaða saltið.
• Ölgerðin hefur alltaf afhent óvottað salt í upprunalegum umbúðum með nákvæmu vörulýsingarblaði og undir upprunalegu nafni.
• Götusalt kemur saltmálinu ekkert við. Götusalt hefur ALDREI verið sett í neinar matvörur á Íslandi. Slíkt salt er framleitt á allt öðrum stað og með öðrum hætti.



