- Þú ert hér: olgerdin.is
- starfsfólk
- starfsmannastefna
Starfsmannastefna
Lykillinn að velgengni fyrirtækja er í vaxandi mæli fólginn í mannauði þeirra. Markmið fyrirtæksins er því að hafa yfir að ráða vel menntuðu, hæfu og áhugasömu starfsfólki sem sameiginlega skapar metnaðarfullt og jákvætt vinnuumhverfi.
Helstu áherslur í starfsmannamálum:
- Fyrirtækið sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem aðbúnaður og kjör eru samkeppnishæf.
- Starfsmenn þekki hlutverk og stefnu fyrirtæksins.
- Starfsmenn séu þjónustusinnaðir og tilbúnir að takast á við krefjandi og spennandi verkefni.
- Starfsfólki séu falin störf við hæfi þannig að hæfileikar þess og frumkvæði fái notið sín.
- Hæfni ráði vali á starfsmönnum.
- Nýir starfsmenn fái góða móttökur og nauðsynlega þjálfun til að þeir kynnist starfsháttum fyrirtækisins. Það tryggir að starfsmenn nái að aðlagast starfsumhverfi og fyrirtækjabrag þess og líði strax vel í starfi.
- Fyrirtækið mun stuðla að nauðsynlegri starfsþjálfun og aðstoða við sí- og endurmenntun starfsfólks.
- Leitast verður við að starfsmenn nái frama innan fyrirtækisins og hafi tækifæri til að þróast og vaxa í starfi.
- Að tryggja að starfsfólk fái reglulega að vita hvernig það stendur sig í starfi.
- Ölgerðin hvetur og styður starfsfólk til heilsuræktar og styður við félagsstarf starfsmanna.
- Þar sem gott starfsfólk er grunnur að vel reknu fyrirtæki þá leggur Ölgerðin mikla áherslu á að starfsandinn sé jákvæður og einkennist af sterkri liðsheild og mikilli hópkennd. Einnig er það mikilvægt að öll samskipti starfsmanna einkennist af gagnkvæmri virðingu og trausti.
- Tryggja góð samskipti og óhindrað upplýsingaflæði til og á milli starfsmanna þar sem það er grundvöllur þess að fyrirtæki nái að vaxa og dafna í þessu síbreytilega umhverfi. Því mun Ölgerðin stuðla að því að halda starfsmönnum sem best upplýstum um stefnu, markmið og árangur fyrirtækisins á hverjum tíma. Skýrar boðleiðir og óhindrað upplýsingaflæði á milli starfsmanna og starfshópa styrkir samheldni, eykur ábyrgð og bætir samskipti innan Ölgerðarinnar.
Heilsustefna Ölgerðarinnar:
Ölgerðinni er umhugað um heilsu starfsmanna sinna og því er það liður í stefnu fyrirtækisins að byggja upp öfluga heilsu- og vinnuvernd til að stuðla að bættri líðan starfsmanna.



