olgerdin

Um Ölgerðina

Ölgerðin er eitt stærsta fyrirtækið á sínu sviði. Ölgerðin framleiðir, flytur inn, dreifir og selur matvæli og sérvöru af ýmsum toga. Áhersla er lögð á að vörur fyrirtækisins séu fyrsta flokks og að viðskiptavinir þess geti gengið að hágæða þjónustu vísri. Aðeins vörur sem eiga þess kost að vera fremstar í sínum flokki eru settar á markað og hverjum birgja sinnt sem hann væri sá eini. Stöðugt er leitað nýrra leiða til að efla starfsemina og ná fram meiri framleiðni með því að gera hlutina betur og fyrr en aðrir. Þetta er gert til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar, neytendur, starfsfólk og eigendur. 

Ölgerðin skiptist í fjögur tekjusvið, sem hvert hefur sitt afmarkaða og ákveðna hlutverk:

Danól: Danól var um árabil ein öflugasta heildsala landsins og við sameiningu Danóls og Ölgerðarinnar varð til ein sú stærsta sinnar tegundar hérlendis. Allt frá upphafi hefur verið lögð mikil rækt við að tryggja að þau vörumerki sem hafa verið tekin inn til sölu, séu þau fremstu á sínu sviði.

Danól er tvískipt, annars vegar matvara og hins vegar sérvara. Matvaran hefur á að skipa vörumerkjum á borð við Merrild, Homeblest, Maryland, Nestlé og svo mætti lengi telja. Í sérvörunni eru vörumerki eins og Oroblu, L'Oreal, Maybelline, Sanpellegrino og El'Vital.

Egils: Egils er í raun tvískipt, annars vegar innflutningur og hins vegar framleiðsla. Ölgerðin er einn stærsti gos- og áfengisframleiðandi landsins og á mörg af elstu og þekktustu vörumerkjum landsins á sínu sviði, t.d. Egils Appelsín og Egils Malt, en síðarnefndi drykkurinn hefur verið framleiddur allar götur síðan 1917. Auk þess er Ölgerðin með leyfi til að framleiða vörur fyrir þekkt vörumerki, á borð við Pepsi Cola.

Ölgerðin er einnig einn af stærstu innflytjendum landsins á áfengi. Mikil áhersla er lögð á að flytja einungis inn hágæðavörur, í þessum flokkum sem öðrum. Johnny Walker, Smirnoff, Penfolds, Campari og Tanqueray eru bara örfá dæmi um þau vörumerki sem Ölgerðin hefur á sínum snærum.

Hressing: Hressing er fyrirtækjaþjónusta Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar sem sérhæfir sig í heildarlausnum í drykkjarvöru og snarli fyrir vinnustaði landsins. Hressing býður upp á fjölbreytt vöruúrval og því þarf viðskiptavinurinn ekki að leita annað til að sjá starfsfólki og gestum fyrir hressingu á annasömum degi.

Hressing býður upp á fjölbreytt úrval af heitum og köldum drykkjum ásamt bragðgóðu snarli, sér viðskiptavinum sínum fyrir vönduðum tækjabúnaði s.s. kaffivélum, kælum og sjálfsölum
sem ýmist er leigður eða lánaður til viðskiptavina. Auk þessa býður Hressing upp á einnota vörur og hreinlætisvörur.

Hægt er að versla hjá Hressingu inni á heimasíðu þeirra, hressing.is

Síminn hjá Hressingu er 412 8000.

Gnótt:  Ölgerðin er ein stærsta heildsala landsins á fyrirtækjasviði og sá hluti fyrirtækisins er sér um það svið heitir Gnótt.  Bakarí, stóreldhús, kjötvinnslur, salatgerðir og matvælaiðnaðurinn treysta á vörur og þjónustu Ölgerðarinnar á þessu sviði. Reynsla, fagmennska og þekking eru einkennisorð fyrirtækisins og reynum við ávallt að mæta kröfum viðskiptavina okkar.

Gnótt er skipt upp í fjórar einingar, sem hver um sig sér um sitt afmarkaða svið. Sviðin eru eldhús, iðnaður, bakarí og umbúðir. Í hverri einingu fyrir sig starfar fagfólk og geta viðskiptavinir Gnóttar treyst á bæði reynslu og fagmennsku starfsfólks, sem og afburða þjónustu.

Síminn hjá Gnótt er 412-8444.

Um Ölgerðina