olgerdin

Dótturfélög

Catco Vín ehf.
Félagið er í 100% eigu Ölgerðarinnar og sér um áfengisframleiðslu. Starfsemin er í 1.000 m2 húsnæði sem stendur við Engjaás í Borgarnesi. Helstu framleiðsluvörur eru: 

  • Brennivín
  • Eldurís
  • Tindavodka 
  • Ópal og Tópas vodkaskot 
  • Eden Eplasnafs
  • REYKA vodka
  • Martin Millers Gin

Reyka er vörumerki í eigu William Grants & Sons í Skotlandi.
Reyka vodka er selt víða um heim, m.a. víða í Bandaríkjunum, fríhafnarverslunum og svo í vínbúðum ÁTVR.

Martin Millers Gin er vörumerki í Reformed Spirits Company. Fyrirtækið Skyy/Campari sér um alheimsdreifingu á gininu. Á Íslandi er dreifingaraðili að sjálfsögðu Ölgerðin.

Iceland spring
Ölgerðin á 20% hlut í Iceland Spring, en aðrir hluthafar eru The Water and Energy Corporation og Pure Holding. Fyrirtækið sér um að tappa vatni á flöskur fyrir Bandaríkjamarkað. Það varð til er sameinuð voru Catco Vatn, Pure Distribution og Iceland Spring undir merkjum þess síðastnefnda. Þetta var gert til að einfalda markaðssókn þessa vörumerkis. 

Sól ehf.
Á haustdögum 2007 keypti Ölgerðin 100% hlut í Sól ehf., sem er eitt fremsta fyrirtækið á Íslandi í dag í framleiðslu á hreinum ávaxtasöfum. Fyrirtækið er til húsa að Lynghálsi 7 í Reykjavík.

Um Ölgerðina