- Þú ert hér: olgerdin.is
- fréttir
Egils Gull til Kanada
01.03.2010 | 13:21
Kanadamenn geta brátt keypt Egils Gull í þarlendum vínbúðum. Fyrsta sendingin ef Egils Gulli hefur þegar náð áfangastað og er komin í verslanir í Kanada.
Kanadíska innflutningsfyrirtækið Fitumi Trading tók sér nokkra mánuði í að kynna sér íslenska bjórframleiðslu með það í huga að setja íslenskt merki á markað þar ytra. Tært íslenskt vatn sem síast hefur í gegnum eldfjallahraun yfir langan tíma, vekur áhuga þarlendra bjóráhugamanna. Eftir talsverða yfirlegu völdu Kanadamennirnir að lokum Egils Gull frá Ölgerðinni til að flytja út og selja þar í landi. Kanadamönnum þótti saga elstu bjórgerðar Íslands stórmerkileg, ekki síst að hún var stofnuð á bannárunum. Að sögn Kanadamannanna hefur áhugi á Íslandi aukist mikið í kjölfarið á bættum flugsamgöngum á milli landanna tveggja, en flogið er beint til Halifax og Toronto. Til marks um áhugann þá fjórfaldaðist fjöldi kanadískra ferðamanna á Íslandi frá árunum 2003 – 2008.
Böndin á milli Kanadamanna og Íslendinga hafa verið sterk, allt frá tímum fólksflutninganna miklu til vesturheims. Talið er að ríflega þrjátíu þúsund manns í Manitoba einni, séu af íslensku bergi brotnir og eru flestir stoltir af þeim uppruna sínum. Þessar forsendur auka bjartsýni innflytjenda á því að íslenskar vörur eigi upp á pallborðið víða í Kanda.
“Við erum hæstánægðir með samstarfið við elstu og stærstu bjórgerð Íslands um innflutning á einu af þekktasta vörumerki landsins, Egils Gull. Það er von okkar að þetta sé aðeins byrjunin og viljum gjarnan leggja okkur fram um að kynna fleiri fyrsta flokks íslenskar vörur fyrir kanadískum neytendum,” var haft eftir Kevin Kelly hjá Fitumi Trading Co.
Íslendingar og Kanadamenn eru vanir því að snúa bökum saman. Andri Þór tók á móti Alan Bones, sendiherra Kanada á Íslandi fyrir skemmstu.



