olgerdin

Hækkun á áfengisverði

04.01.2010 | 11:21

Um áramótin tóku gildi ný lög frá Alþingi um 10% hækkun á áfengisgjaldi, sem og hækkun virðisaukaskatts úr 24,5% í 25,5%.

Það þýðir að allt áfengi hækkar í verði en er hækkunin nokkuð mismunandi eftir tegundum, þar sem áfengisgjald er reiknað út frá styrkleika (áfengisprósentu) hverjar vöru fyrir sig.

Má gera ráð fyrir að útsöluverð hækki að meðaltali sem hér segir:

Léttvín 6-9%
Bjór 4-6%
Sterkt áfengi 8,5-11%

Til baka

Fréttir