13. febrúar 2026
Kærleiksdrykkur Lavazza í boði á Valentínusardaginn
Á Valentínusardaginn ætlar Lavazza búðin í Hagkaup Smáralind að bjóða gestum upp á sérstakan Kærleiksdrykk – bleikan og ...
fljótleg leit
Vinnustaðurinn
Hafa samband
snyrtivara
Luxeklúbburinn stóð fyrir Armani námskeiði 15.janúar sl. í Makeup Studio Hörpu Kára þar sem förðunarfræðingurinn Ísak Freyr var með flotta sýnikennslu. Hann fór yfir allskonar lykilatriði sem þarf að hafa í huga þegar gera á fallega og endingargóða förðun. Hann sýndi frá sínum uppáhalds vörum frá merkinu og hvernig honum þætti best að nota vörurnar. Hann byrjaði á að sýna létta dagförðun þar sem hann fór yfir hvernig hann undirbýr húðina, en góður grunnur skiptir gríðarlega miklu máli þegar gera skal fallega förðun. Síðan sýndi hann frá því hvernig hægt væri að breyta léttri dagförðun í dramatískari kvöldförðun með nokkrum einföldun skrefum.
50 gestir sóttu námskeiðið og var boðið upp á léttar veitingar og voru gestir leystir út með veglegum gjafapokum.
Ótrúlega vel heppnað og dásamlegt kvöld sem við áttum með frábæru fólki.
Þetta námkeið vakti mikla lukku og komust færri að en vildu og vonumst til að geta haldið annað álíka námskeið í komandi framtíð!