Vistró
Nýtt nafn og nýr kafli í þjónustu við íslensk stóreldhús. Stóreldhúsasvið Danól hefur fengið nýtt nafn og ásýnd og mun héðan í frá starfa undir merkjum Vistró. Með breytingunni er lagður grunnur að nýjum kafla í þjónustu Danól við stóreldhús og veitingamarkaðinn, þar sem áhersla verður lögð á fagþekkingu, áreiðanleika og öflugt samstarf við viðskiptavini. Samhliða nýju vörumerki hefur Vistró flutt í nýtt húsnæði að Köllunarklettsvegi 6 og tekið þar í notkun nýtt og stærra vöruhús sem mun tryggja skilvirka og trausta þjónustu við breiðan og fjölbreyttan hóp viðskiptavina.
Danól
Danól er heildsala með fyrsta flokks matvæli og sérvöru af ýmsum toga. Það eru þrjú svið sem eru matvara og snyrti- og sérvara og núna stóreldhúsasvið undir merkinu Vistró. Innan hvers sviðs fyrir sig starfar fagfólk sem viðskiptavinir geta treyst á bæði reynslu og yfirgripsmikla þekkingu á vörunum okkar sem og afburða þjónustu.
Heimsþekkt vörumerki
Vörumerkin okkar eru fjölmörg og er markmið okkar að bjóða uppá fjölbreytt og gæðamikið úrval vara.
Kaffiþjónustan
Kaffiþjónustan býður upp á heildarlausnir í kaffiveitingum fyrir fyrirtæki, þar á meðal hágæða kaffivélar og úrval kaffitegunda. Þjónustan er sniðin að þörfum viðskiptavina og tryggir áreiðanleika og gæði. Áhersla er lögð á faglega þjónustu og skilvirkar lausnir fyrir vinnustaði.