27. febrúar 2026
Þrjár tilnefningar til Lúðurs 2025
Danól hefur hlotið þrjár tilnefningar til Lúðurs 2025, íslensku auglýsingaverðlaunanna. Við erum afar stolt af þessari v ...
fljótleg leit
Vinnustaðurinn
Hafa samband
matvara
Við kynnum með stolti Bloom í vöruval Danól.
Bloom eru gríðarlega vinsæl fæðubótarefni sem margir þekkja nú þegar. Vörumerkið var stofnað í Bandaríkjunum árið 2019 og hefur síðan þá notið mikilla vinsælda. Í janúar 2026 kom Bloom á Evrópumarkað og við erum svo heppin að fá að vera samhliða Bretlandi í að koma merkinu á markað hér á Íslandi. Bloom fæðubótarefnin eru hönnuð til að styðja við orku, einbeitingu og almenna vellíðan. Vörurnar sameina gæði og markvissa næringu með það að markmiði að styðja við heilbrigðan og virkan lífsstíl.
Við munum bjóða það vöruúrval sem er í boði fyrir Evrópumarkað, þar á meðal prótein, kreatín, pre-workout og vinsælustu vöruna þeirra Greens og Superfoods sem er meðal toppvara í sínum flokki í Bandaríkjunum.
Við hlökkum til að kynna Bloom fyrir viðskiptavinum okkar og íslenskum markaði.