10. apríl 2026
BLOOM loksins komið til Íslands
Við kynnum með stolti Bloom í vöruval Danól. Bloom Nutrition vinnur að því að hjálpa fólki að blómstra og verða besta ú ...
fljótleg leit
Vinnustaðurinn
Hafa samband
Við kynnum með stolti Bloom í vöruval Danól.
Bloom Nutrition vinnur að því að hjálpa fólki að blómstra og verða besta útgáfan af sjálfu sér með hágæða fæðubótarefnum sem sameina bragð, virkni og aðgengi. Fyrirtækið var stofnað árið 2019 af Mari Llewellyn og Greg LaVecchia og hefur á skömmum tíma orðið eitt áhrifamesta heilsuvörumerki Bandaríkjanna. Bloom varð til út frá persónulegri vegferð meðstofnandans Mari Llewellyn, sem umbreytti lífi sínu & hóf sína heilsuvegferð. Í dag er markmið vörumerkisins að bjóða upp á einfaldar, bragðgóðar og áhrifaríkar vörur sem hjálpa hverri konu að blómstra og verða besta útgáfan af sjálfri sér.
Við munum bjóða það vöruúrval sem er í boði fyrir Evrópumarkað, þar á meðal prótein, kreatín, pre-workout og vinsælustu vöruna þeirra Greens og Superfoods sem er meðal toppvara í sínum flokki í Bandaríkjunum.
Vörulínan, sem nú er komin til Íslands, inniheldur:
-Bloom Clear Prótein: Léttur og frískandi próteindrykkur sem veitir 20 g af próteini í hverjum skammti til að styðja við vöðvavöxt og styrk
-Bloom Pre-Workout: Inniheldur B-vítamín sem styður við orku og hjálpa þér að mæta í hverja æfingu með krafti, fókus og tilbúin/n í slaginn. Inniheldur 150gr af náttúrulegu koffíni.
-Bloom Creatine: Þegar tekið er samhliða markvissri styrktarþjálfun hjálpar kreatín þér að bæta frammistöðu, lyfta þyngra og spretta hraðar – hvort sem þú ert að taka æfingarnar á næsta stig eða vinna að stöðugum framförum.
-Bloom Greens & Superfood: Mest selda „greens“ vörumerki Bandaríkjanna. Bloom Greens & Superfoods duftið er góð leið til að gefa líkamanum aukaskammt af næringarefnum sem eru góð fyrir þig — kraftmikil blanda yfir 20 virkra næringarefna, ríkt af ávöxtum og grænmeti. Inniheldur góðgerla,trefjar, kalk, spirulína, grænþörunga, hveitigras, bygggras, meltingarensím og fleira sem styður við bætta meltingu og betri orku.
Við hlökkum til að kynna Bloom fyrir viðskiptavinum okkar og íslenskum markaði.
Vörur frá Bloom Nutrition fást nú í eftirfarandi verslunum:
Fjarðarkaup, Hagkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Kassinn Ólafsvík, Krónan, Nettó, Lyf & heilsa, Lyfju, Lyfjaver,