13. maí 2026
Schofrulade – ný og fersk upplifun með frosnum ávöxtum
Schofrulade sameinar safaríka frosna ávexti og silkimjúkt súkkulaði í einstakri bragðupplifun. Schofrulade hefur einnig ...
fljótleg leit
Vinnustaðurinn
Hafa samband
stóreldhús
Danól og Olifa á Íslandi hafa hafið samstarf sem markar nýjan kafla í aðgengi íslenskra veitingastaða og stóreldhúsa að ítölskum gæðahráefnum. Með samstarfinu verða vörur frá Olifa nú aðgengilegar á Horeca-markaði í gegnum stóreldhússvið Danól.
Olifa hefur á undanförnum árum byggt upp sterkt orðspor fyrir innflutning á vandlega völdum ítölskum gæðavörum, þar á meðal upprunavottuðum jómfrúarolíum, Rummo pasta og fjölbreyttu úrvali hráefna frá framleiðendum víðs vegar um Ítalíu. Rummo pasta og Olifa olíur hafa skipað sér í fremstu röð á íslenskum markaði og eru meðal söluhæstu pasta- og ólífuolíuvara landsins. Hingað til hafa vörurnar fyrst og fremst verið aðgengilegar neytendum, en með samstarfinu við Danól opnast ný tækifæri fyrir fagfólk í matargerð að nálgast þessar vinsælu vörur.
„Við hjá Olifa erum afar ánægð með að hefja samstarf við Danól. Frá því að við opnuðum Olifa La Madre Pizza höfum við fundið fyrir mikilli eftirspurn frá veitingageiranum eftir vörunum okkar. Með Danól höfum við fundið öflugan samstarfsaðila sem getur stutt við áframhaldandi vöxt með faglegri söluþjónustu, dreifingu og lagerhaldi,“ segir Ása María Reginsdóttir, stofnandi Olifa á Íslandi.
Saga Olifa á rætur sínar að rekja til Ítalíu þar sem Ása María og Emil Hallfreðsson bjuggu um árabil. Fyrirtækið varð til á Ítalíu á þeim tíma sem Emil lék þar knattspyrnu og þar kviknaði áhugi þeirra á ítalskri matargerð og þeim einstöku hráefnum sem einkenna hana. Úr varð Olifa, fyrirtæki sem byggir á faglegri þekkingu, persónulegum tengslum við framleiðendur og metnaði fyrir því að færa íslenskum markaði ekta ítölsk gæði.
Í dag býður Olifa upp á fjölbreytt úrval vara sem hafa skipað sér sess bæði á heimilum landsmanna og í faglegum eldhúsum. Samhliða innflutningnum reka þau einnig hinn vinsæla veitingastað Olifa La Madre Pizza á Suðurlandsbraut.
Hjá Danól ríkir mikil ánægja með samstarfið og þau tækifæri sem það skapar fyrir viðskiptavini fyrirtækisins.
„Við erum stolt af því að fá Olifa til liðs við okkur. Fyrirtækið hefur byggt upp einstakt tengslanet við framleiðendur á Ítalíu og kemur með bæði faglega þekkingu og góð sambönd að borðinu. Vörurnar passa afar vel inn í þá stefnu okkar að bjóða viðskiptavinum fyrsta flokks hráefni og lausnir fyrir fageldhús. Samstarfið styrkir vöruframboð okkar enn frekar og gerir okkur kleift að mæta aukinni eftirspurn eftir ekta ítölskum gæðavörum,“ segir María Jóna Samúelsdóttir, framkvæmdastjóri Danól.