fljótleg leit

18. nóvember 2026

Við erum stolt að segja frá því að Danól bar sigur úr býtum í flokki meðalstórra fyrirtækja í Ræktum vitið 2026, símenntunarátaki SVÞ, VR og LÍV sem fram fór í október. Markmið átaksins er að hvetja starfsfólk til að efla þekkingu sína og að vekja athygli á þeim lærdómi sem á sér stað í daglegum störfum.

Það var sérstaklega ánægjulegt að taka þátt, enda eru símenntun og endurmenntun okkur í Danól afar mikilvæg. Við störfum í umhverfi þar sem tækninni fleygir hratt fram. Stöðug þekkingaröflun skiptir því sköpum, bæði fyrir fyrirtækið, starfsfólkið og ekki síst viðskiptavini okkar.

Fræðsla er órjúfanlegur hluti af starfi okkar, og þessi viðurkenning endurspeglar þann metnað sem starfsfólk Danól sýnir á hverjum degi. Við erum bæði þakklát og stolt af þeim fjölda starfsmanna sem tók þátt í þessu flotta verkefni.