fljótleg leit

Fræðandi námskeið með Ireks í samstarfi við Sesam brauðhús

20. apríl 2026

Nýlega héldum við vel heppnað námskeið í samstarfi við vörumerkið okkar Ireks.

Námskeiðið fór fram hjá Sesam brauðhúsi á Reyðafirði, þar sem aðstaða og móttaka voru til fyrirmyndar. Við viljum færa starfsfólki Sesams kærar þakkir fyrir frábæra aðstoð og samstarf. Sesam er fjölskyldurekið handverksbakarí sem hefur starfað á Reyðafirði síðan 2011.

Á námskeiðinu var farið yfir helstu vöruflokka Ireks, þar á meðal kökublöndur, brauðblöndur og hjálparefni. Þátttakendur fengu tækifæri til að kynnast vörunum í verki og viðbrögðin voru afar jákvæð.

Við þökkum öllum sem tóku þátt fyrir komuna og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.