fljótleg leit

matvara

8. júlí 2026

Nýi ávaxtaísinn Asía hefur fengið frábærar viðtökur frá því hann kom í sölu hjá Krónunni. Eftirspurnin hefur farið fram úr væntingum og varan hefur vakið mikla athygli, bæði í verslunum og á samfélagsmiðlum.

Asía er vegan ávaxtaís sem fæst í fjórum bragðtegundum: mangó, hvítri ferskju, jarðarberi og sítrónu. Varan hefur verið hluti af vinsælu matartrendi á samfélagsmiðlum víða um heim og íslenskir neytendur hafa greinilega tekið henni fagnandi.

Mikill áhugi á Frozen Dessert hefur einnig vakið athygli fjölmiðla og fjallar mbl.is um þær frábæru viðtökur sem varan hefur fengið.