fljótleg leit

matvara

21. október 2026

Danól og Bónus bjóða börnum og fjölskyldum í skemmtilegt hrekkjavökufjör föstudagana 23. og 30. október. HARIBO bangsinn verður á staðnum og boðið verður upp á andlitsmálningu, nammi og glaðninga.

Sérstakir HARIBO hrekkjavökukastalar hafa verið settir upp í verslunum Bónus á Smáratorgi og í Miðhrauni. Kastalarnir eru nýjung hér á landi og skapa skemmtilega umgjörð um hátíðina, fullir af HARIBO hrekkjavökunammi.

Fjölskyldur eru hvattar til að taka fram búningana og koma með börnin í heimsókn. HARIBO bangsinn tekur þátt í fjörinu og gestir geta fengið andlitsmálningu, þegið nammi og smellt af skemmtilegum hrekkjavökumyndum við myndaspjald á staðnum.

Fyrstu gestirnir sem mæta í búningi fá bíómiða á kvikmyndina Skrímslaskólinn í Laugarásbíói, meðan birgðir endast. Gestir fá einnig nammipoka sem kemur sér vel þegar farið verður að banka upp á á hrekkjavökunni.

Hugmyndin að köstulunum kemur erlendis frá, þar sem HARIBO hefur tekið þátt í hrekkjavökugleðinni með sambærilegum uppsetningum. Þetta er í fyrsta sinn sem kastalarnir eru settir upp hér á landi og er verkefnið unnið í samstarfi Danól og Bónus.

Við hlökkum til að taka á móti börnum og fjölskyldum í hrekkjavökugír!