13. maí 2026
Schofrulade – ný og fersk upplifun með frosnum ávöxtum
Schofrulade sameinar safaríka frosna ávexti og silkimjúkt súkkulaði í einstakri bragðupplifun. Schofrulade hefur einnig ...
fljótleg leit
Vinnustaðurinn
Hafa samband
stóreldhús
Nýtt nafn og nýr kafli í þjónustu við íslensk stóreldhús. Stóreldhúsasvið Danól hefur fengið nýtt nafn og ásýnd og mun héðan í frá starfa undir merkjum Vistró. Með breytingunni er lagður grunnur að nýjum kafla í þjónustu Danól við stóreldhús og veitingamarkaðinn, þar sem áhersla verður lögð á fagþekkingu, áreiðanleika og öflugt samstarf við viðskiptavini. Samhliða nýju vörumerki hefur Vistró flutt í nýtt húsnæði að Köllunarklettsvegi 6 og tekið þar í notkun nýtt og stærra vöruhús sem mun tryggja skilvirka og trausta þjónustu við breiðan og fjölbreyttan hóp viðskiptavina.
Flutningurinn að Köllunarklettsvegi 6 markar mikilvæg tímamót í starfsemi Vistró. Með nýju húsnæði og aukinni vöruhúsagetu skapast forsendur til að efla skilvirkni í dreifingu og taka yfir verkefni sem áður voru í höndum þriðja aðila. Undirbúningur vöruhússins hefur jafnframt falið í sér endurskoðun á þjónustustigi, verkferlum og afhendingum.
„Með vexti Danól á undanförnum árum hafa skapast áskoranir sem tengjast hýsingu og dreifingu sem tímabært var að mæta. Með nýju höfuðstöðvunum getum við tryggt skilvirkni og áreiðanleika og brugðist við þörfum sívaxandi viðskiptavinahóps. Á sama tíma skapar aðstaðan raunhæfan grundvöll fyrir áframhaldandi vöxt og markaðssókn“.
Áherslur Vistró eru fagþekking, gæði, leikgleði og áreiðanleiki. Á bakvið þær áherslur stendur sú hugsun að fagfólk getur aðeins skapað, þróað og prófað sig áfram þegar grunnurinn er traustur, vörurnar standast væntingar og þjónustan skilar sér þegar á reynir. Í nýjum höfuðstöðvum Vistró er einnig fullbúið eldhús og viðburðasalur þar sem tekið verður á móti viðskiptavinum og samstarfsaðilum. Sú aðstaða hefur fengið nafnið Vistró Bistro og þar verður leikgleðin í fyrirrúmi.
Vöruúrval Vistró endurspeglar breidd viðskiptavina hópsins, sem nær allt frá matvælaiðnaði og mötuneytum til veitingastaða í hæsta gæðaflokki. Þar má finna heimsþekkt vörumerki á borð við Lavazza og McCain auk fjölda minni og meðalstórra vörumerkja sem mynda heildstætt vöruúrval. Áhersla er lögð á gæði, traust og náið samstarf við birgja og framleiðendur.
„Við veljum vörur og vörumerki sem hafa burði til að verða leiðandi í sínum flokki hér á landi. Te framleiðandinn Birchall er gott dæmi um um vörumerki sem endurspeglar þá áherslu. Þetta breska fjölskyldufyrirtæki á sér yfir 140 ára langa sögu í tegerð og hefur skapað sér sérstöðu með vönduðu hráefni, handverki og áherslu á sjálfbærni. Við viljum bjóða fagfólki vörur sem standast kröfur þess og hafa sterka sögu að segja“.
Meðal annarra vörumerkja eru Salsus sem framleiðir hágæða soð og sósugrunna sem eru fyrir löngu orðin þekkt hérlendis á meðal fagfólks og þýska fyrirtækið Erlenbacher sem sérhæfir sig í frosnum kökum, tertum og eftirréttum.
Nýtt samstarf við Olifa á Íslandi markar einnig tímamót í aðgengi íslenskra veitingastaða og stóreldhúsa að ítölskum gæða hráefnum. Samstarfið felur í sér að vörurnar frá Olifa, sem Íslendingar þekkja vel, eru nú aðgengilegar á stóreldhús markaði í gegnum Vistró.
Nýr kafli í langri sögu Danól
Danól hefur starfað frá árinu 1932 og selur matvæli og sérvöru. Fyrirtækið leggur áherslu á fyrsta flokks vörur, faglega ráðgjöf og þjónustu sem viðskiptavinir geta treyst.
Starfsemi Danól skiptist í þrjú meginsvið, matvöru, stóreldhús og snyrti- og sérvöru. Innan hvers sviðs starfar fagfólk með yfirgripsmikla þekkingu á vörum og þörfum viðskiptavina. Með Vistró fær stóreldhús sviðið skýrari sérstöðu og öflugri vettvang til að vaxa og þróast í takt við breyttar þarfir markaðarins.
Vistró kynnir nýja vörumerkið á Stóreldhús Sýningunni í Laugardalshöll 5. og 6. nóvember, kl. 12–18. Þar gefst gestum kostur á að hitta teymið, fræðast um vörur og þjónustu og sjá nýju ásýndina.