Leið okkar að sjálfbærni
Við höfum mikinn metnað á sviði sjálfbærni og erum markvisst að innleiða sjálfbærni í menningu fyrirtækisins. Til að ná framtíðarsýn fyrirtækisins um að verða fyrsta val viðskiptavina og neytenda þarf að huga að sjálfbærni í allri virðiskeðjunni. Okkar viðskiptavinir og neytendur gera kröfu um að versla við fyrirtæki sem stuðla að sjálfbærni og þau fyrirtæki búa yfir og viðhalda hæfari starfsfólki.
Við ætlum að vera í framvarðasveit íslenskra fyrirtækja á sviði sjálfbærni og mæta nútímaþörfum viðskiptavina og neytenda okkar, án þess að skerða möguleika komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum. Framtíðarsýn fyrirtækisins verður náð með því að leggja áherslu á fjóra strauma: sjálfbærni, vöxt, stafræna þróun og fjölbreytileika. Þannig sköpum við virði fyrir alla okkar hagaðila og verðmætasköpun til framtíðar.
Danól er dótturfyrirtæki Ölgerðarinnar og starfar í samræmi við sömu sjálfbærnistefnu og móðurfélagið.