Stökk að utan, mjúk að innan
Choux au craquelin bollur
bollur
Aðferð
Smjör og vatn er hitað saman í potti og soðið vel. Hveiti síðan bætt við og því öllu hrært vel og lengi saman. Svo er blandan sett í vél og unnið á miðlungs hraða á meðan deigið kælir sig niður. Eggjunum er bætt við hægt og rólega, þegar blandan hefur kólnað.
Hrærið deigið með spaða þar til það er eins og silki og hefur fengið smá glans.
Sprautið á slétta plötu með engum pappír eða fitu og bakið í ofni á 230° gráðum í 2 mín. Lækka svo í 200° gráður í 10 min. Bakið í heildina 20 til 25 mín.
Deigþyngd: 30 g per bolla og 5 g craquelin deig.
Aðferð
Kælið deigið í 30 mín. Eftir að deigið hefur kælt sig nóg, er það rúllað niður í 2 mm, skorið út og sett yfir hverja einustu vatnsdeigsbollu.
Ofnhiti: 175 – 180 °C
Baksturstími: Ca. 30 mín.