Mjúk, súkkulaðikennd og ómótstæðileg
Vatnsdeigsbolla með Nutella kremi og kransabita
bollur
Aðferð
Hitið smjörið og vatnið að suðu. Bætið hveitinu út í og hrærið kröftuglega þar til deigið er ekki að klístrast og nær að halda sér. Það verður að vera hitað vel í gegn og glansandi. Kælið deigið aðeins og hrærið eggjunum saman við einu í einu. Mikilvægt er að hræra vel með hverju eggi svo deigið verði ekki of þunnt.
Setjið vatnsdeigið á bökunarplötu með tveimur skeiðum eða sprautið þær út í sprautupoka með stút. Bakið við 220°C í ca. 20 mínútur eftir stærð.
ATHUGIÐ: Mikilvægt er að ofninn sé ekki opnaður fyrstu 20 mínúturnar því þá falla þær saman. Þegar þær líta út fyrir að vera bakaðar, takið þá eina út og setjið á grind. Ef hún heldur lögun sinni eru þær tilbúnar en ef bollan byrjar að hrynja þá þurfa þær aðeins meira tíma.
Aðferð
Blandið öllum hráefnum saman fyrir kransabitana. Kransakökublöndunni er sprautað með sprautupoka og stút í 30 flatar smákökur sem passa við stærðina á bollunum, á bökunarplötu með bökunarpappír og bakaðar í ca. 10 mínútur við 220°C þar til þær eru gylltar og stökkar.
Nutella krem
- Þeyttur rjómi 2,5 dl
- 200 g Nutella (105669)
Þeytið nutellarjómann þar til hann verður loftkenndur.
Skerið hverja bollu í tvennt og fyllið þær með kreminu.
Festið bollurnar á kransakökubotninn með bræddu súkkulaði og skreytið þær ofan á með bræddu súkkulaði.