fljótleg leit

Aftur í öll störf

Sölumaður á matvörusviði

Danól leitar að jákvæðum og ábyrgðarfullum sölumanni til að sinna almennum sölu og áfyllingarstörfum í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Að taka við pöntunum og koma þeim áleiðis í ferli
Að þjónusta viðskiptavini og mæta þörfum þeirra
Að framstilla, fylla á, merkja og ganga frá vörum á faglegan hátt
Eftirlit með markaðnum og eftirfylgni söluherferða og tilboða
Að hámarka sölutækifæri og lágmarka rýrnun
Að tryggja fagleg samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk

Hæfniskröfur:

Bílpróf
Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
Rík þjónustulund og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð samskiptahæfni og samningatækni
Jákvæðni og áreiðanleiki


Umsóknarfrestur frá:

08. október 2026

Umsóknarfrestur til:

22. október 2026