20. apríl 2026
Fræðandi námskeið með Ireks í samstarfi við Sesam brauðhús
Nýlega héldum við vel heppnað námskeið í samstarfi við vörumerkið okkar Ireks. Námskeiðið fór fram hjá Sesam brauðhúsi ...
fljótleg leit
Vinnustaðurinn
Hafa samband
Nýtt nafn og nýr kafli í þjónustu við íslensk stóreldhús. Stóreldhús svið Danól hefur fengið nýtt nafn og ásýnd og mun héðan í frá starfa undir merkjum Vistró. Með breytingunni er lagður grunnur að nýjum kafla í þjónustu Danól við stóreldhús og veitingamarkaðinn, þar sem áhersla verður lögð á fagþekkingu, áreiðanleika og öflugt samstarf við viðskiptavini. Samhliða nýju vörumerki hefur Vistró flutt í nýtt húsnæði að Köllunarklettsvegi 6 og tekið þar í notkun nýtt og stærra vöruhús sem mun tryggja skilvirka og trausta þjónustu við breiðan og fjölbreyttan hóp viðskiptavina.
Hafsteinn Snæland hefur tekið við forystu Vistró sem sölu- og markaðsstjóri og mun leiða áframhaldandi uppbyggingu og vöxt fyrirtækisins á næstu árum og vinna náið með starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum að því að efla vöruúrval og þjónustu. Hafsteinn er lærður matreiðslumaður með um tveggja áratuga reynslu úr veitingageiranum ásamt því að hafa verið rekstrarstjóri brugghúsa hjá Ölgerðinni síðan 2023.
„Vistró byggir á áratuga reynslu og traustum grunni Danól. Með breytingunum viljum við skapa sterkt vörumerki sem talar beint til fagfólks. Stóreldhúsmarkaðurinn er í stöðugri þróun og Vistró ætlar að vera samstarfsaðili sem hlustar á þarfir markaðarins og skilar árangri. “, segir Hafsteinn.
Flutningurinn að Köllunarklettsvegi 6 markar mikilvæg tímamót í starfsemi Vistró. Með nýju húsnæði og aukinni vöruhúsagetu skapast forsendur til að efla skilvirkni í dreifingu og taka yfir verkefni sem áður voru í höndum þriðja aðila. Undirbúningur vöruhússins hefur jafnframt falið í sér endurskoðun á þjónustustigi, verkferlum og afhendingum.
„Með vexti Danól á undanförnum árum hafa skapast áskoranir sem tengjast hýsingu og dreifingu sem tímabært var að mæta. Með nýju höfuðstöðvunum getum við tryggt skilvirkni og áreiðanleika og brugðist við þörfum sívaxandi viðskiptavinahóps. Á sama tíma skapar aðstaðan raunhæfan grundvöll fyrir áframhaldandi vöxt og markaðssókn“.
Áherslur Vistró eru fagþekking, gæði, leikgleði og áreiðanleiki. Á bakvið þær áherslur stendur sú hugsun að fagfólk getur aðeins skapað, þróað og prófað sig áfram þegar grunnurinn er traustur, vörurnar standast væntingar og þjónustan skilar sér þegar á reynir. Í nýjum höfuðstöðvum Vistró er einnig fullbúið eldhús og viðburðasalur þar sem tekið verður á móti viðskiptavinum og samstarfsaðilum. Sú aðstaða hefur fengið nafnið Vistró Bistro og þar verður leikgleðin í fyrirrúmi.
Vistró er nýyrði með vísanir í bæði vistir og veitingageirann. Vörumerkið og ásýnd þess voru þróuð í samstarfi við danska markaðsfyrirtækið CoPlus.
„Leitin að nýju nafni var skemmtilega krefjandi. Okkur finnst Vistró ramma inn kjarnann í okkar starfsemi. Vistir eru aðföngin sem hvert eldhús þarf, og orðið "bistró" þekkja allir. Í nafninu má einnig finna tengingar við gastro, maestro og fleiri orð sem tengjast veitingageiranum beint og óbeint.“, segir Hafsteinn.
Áberandi hluti Vistró merkisins er hringurinn yfir o-inu, sem er staðsettur hægra megin líkt og gráðumerki. Hann vísar til nákvæmni og vandvirkni í eldhúsinu, þar sem hver gráða skiptir máli. Þannig fær Vistró sína eigin meistaragráðu.
Vöruúrval Vistró endurspeglar breidd viðskiptavina hópsins, sem nær allt frá matvælaiðnaði og mötuneytum til veitingastaða í hæsta gæðaflokki. Þar má finna heimsþekkt vörumerki á borð við Lavazza og McCain auk fjölda minni og meðalstórra vörumerkja sem mynda heildstætt vöruúrval. Áhersla er lögð á gæði, traust og náið samstarf við birgja og framleiðendur.
„Við veljum vörur og vörumerki sem hafa burði til að verða leiðandi í sínum flokki hér á landi. Te framleiðandinn Birchall er gott dæmi um um vörumerki sem endurspeglar þá áherslu. Þetta breska fjölskyldufyrirtæki á sér yfir 140 ára langa sögu í tegerð og hefur skapað sér sérstöðu með vönduðu hráefni, handverki og áherslu á sjálfbærni. Við viljum bjóða fagfólki vörur sem standast kröfur þess og hafa sterka sögu að segja“.
Meðal annarra vörumerkja eru Salsus sem framleiðir hágæða soð og sósugrunna sem eru fyrir löngu orðin þekkt hérlendis á meðal fagfólks og þýska fyrirtækið Erlenbacher sem sérhæfir sig í frosnum kökum, tertum og eftirréttum.
Nýtt samstarf við Olifa á Íslandi markar einnig tímamót í aðgengi íslenskra veitingastaða og stóreldhúsa að ítölskum gæða hráefnum. Samstarfið felur í sér að vörurnar frá Olifa, sem Íslendingar þekkja vel, eru nú aðgengilegar á stóreldhús markaði í gegnum Vistró.
Danól hefur starfað frá árinu 1932 og selur matvæli og sérvöru. Fyrirtækið leggur áherslu á fyrsta flokks vörur, faglega ráðgjöf og þjónustu sem viðskiptavinir geta treyst.
Starfsemi Danól skiptist í þrjú meginsvið, matvöru, stóreldhús og snyrti- og sérvöru. Innan hvers sviðs starfar fagfólk með yfirgripsmikla þekkingu á vörum og þörfum viðskiptavina. Með Vistró fær stóreldhús sviðið skýrari sérstöðu og öflugri vettvang til að vaxa og þróast í takt við breyttar þarfir markaðarins.
Vistró kynnir nýja vörumerkið á Stóreldhús Sýningunni í Laugardalshöll 5. og 6. nóvember, kl. 12–18. Þar gefst gestum kostur á að hitta teymið, fræðast um vörur og þjónustu og sjá nýju ásýndina.
Vörumerki